Atvinnueign kynnit til leigu: bjart og rúmgott skrifstofurými við Klettagarða 12.
Um er að ræða 105 fm opið rými á norðvestur hluta jarðhæðar.
Nánari lýsing: Gengið er inn um aðaldyr og gengið inn í sameign, gengið er inn gang og er rýmið innst þar á hægri hönd. Rýmið er bjart og með fallegu útsýni út á Faxaflóa. Dökkt teppi er á gólfi.
Í sameign húss eru nokkur sameiginleg fundarherbergi og fyrir utan hvert herbergi er bókunnarkerfi til þess að bóka fundi í viðkomandi herbergi, á annarri hæð er svo aðstaða til námskeiðahalda, þar er einnig mötuneyti sem að leigjendur hafa aðgang að og get keypt sér aðgang að mat, á jarðhæð eru búningsklefar með sturtuaðstöðu og næg bílastæði eru fyrir framan húsið. Húsið og aðstaðan er öll hin snyrtilegasta.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir: Davíð Jens Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma
821 6897 eða
[email protected]Evert Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma
823 3022 eða
[email protected]Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf
, www.atvinnueign.is.- Atvinnueignir eru okkar fag -