Atvinnueign kynnir til leigu: Hágæða skrifstofurými á 16. hæð í einni af vönduðustu skrifstofubyggingu landsins. Rýmið býður upp á opið vinnurými ásamt 5 fundarherbergjum eða teymisrýmum. Góð kaffiaðstaða er í rýminu.
Gardínur eru rafstýrðar og fara sjálfkrafa niður í lok dags.
Stórbrotið útsýni, óhindrað til sjávar og fjalla ásamt glæsilegu útsýni yfir borgina. Frábær staðsetning í einu helsta viðskiptaumhverfi Reykjavíkur með afbragðs almenningssamgöngum, mikið af veitingastöðum og öll þjónusta í nágrenninu. Í húsinu er bílakjallari með 1.300 bílastæðum, hleðslustöð og þvottastöð.
Á fyrstu hæðinni er sameiginlega móttaka fyrir fyrirtæki, aðgangsstýring er upp á hæðir og í kjallara er reiðhjólageymsla og búningsaðstaða sem nýlega hefur verið uppfærð. VSK skylt húsnæði.
Nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir: Evert Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma
8233022 eða
[email protected] - Atvinnueignir eru okkar fag -